Hvað er eiginlega að í Austurríki?

Þessir Austurríkismenn. Það er alveg sama hvað er í gangi, ef það er nógu innilega sjúkt er nokkuð líklegt að það sé í gangi í Austurríki. Kerlingin sem drap börnin sín, geymdi í frysti og gróf undir gólfi fannst þar nýlega. Svo þessi Priklopril perri sem geymdi Natöschu Kampusch í kjallaranum í tíu ár. Og núna þessi hryllingur. Hvernig stendur á því að þessi meðalstóra þjóð elur af sér hvern hryllinginn af fætur öðrum? Manni dettur einna helst í hug Belgía með sína foráttuperra ef maður á að finna eitthvað í líkingu við þetta. Belgía og Austurríki. Svo sem svipuð ríki, hvorugt "alvöru" land að neinu leyti, austurríki hliðarríki við Þýskaland og engin sérkenni frekar en eitthvað sambandslandið þar, og Belgía er náttúrulega bara grín, tvær þjóðir í einu landi, Frakkar hreinir og klárir annars vegar og svo hálf-Hollendingar. Ekki furða að ESB bákninu hafi verið drullað niður í Belgíu, svona gersamlega hlutlausu svæði.

Já, og svo má ekki gleyma Austurríkismanninum Hitler. Hann var nú meiri kallinn. 


mbl.is Píslarvættið í hryllingshúsinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband